Hin 59 ára gamli simpansi, Mama, lá nýverið fyrir dauðanum í dýragarði í Arnherm í Hollandi fyrir nokkrum árum, var búin að missa áhugann á að borða og drekka. Beið bara eftir dauðanum. En þá fékk hún óvænta heimsókn.
Í gríðarfallegu myndbandi sem nýlega fór í dreifingu á samfélagsmiðlunum og má sjá hér að neðan, sést hin aldraða Mama, fá heimsókn á dánarbeðinu frá Jan van Hooff, prófessor sem hefur verið vinur hennar frá árinu 1973. Á árum áður sá van Hooff um hana og myndaðist með þeim einstök tengsl.
Um leið og Mama áttar sig á því hver gesturinn er, lifnar aldeilis yfir henni og eiga þau afar fallega stund saman. Sjón er sögu ríkari: