Vilhjálmur prins og Katrín hertoghynja ætla að flytja í sumar í Windsor kastala samkvæmt heimildum The Sun. Hjónin eru sögð vilja vera nær Elísabetu drottningu en hafa þau skoðað fjölda lúxussetra í nágrenni við Windsor. Eitt setrana er í eigu Andrésa Bretaprinsar en samkvæmt heimildum Sun vill prinsinn ekki selja þeim eignina.
Karli og Vilhjálmi leist ekki á blikuna þegar Andrés fylgdi drottningunni inn kirkjugólfið við minningarathöfn Filippus fyrir stuttu. Í kjölfarið vildi Vilhjálmur flytja nær ömmu sinni. Andrés prins hefur verið sakaður um að hafa brotið á 17 ára stúlku á heimili Jeffrey Epstein en Jeffrey, er marg dæmdur kynferðisbrotamaður og sagður einn af bestu vinum Andrésar.