Andri Snær Magnason rithöfundur og leikritaskáld vill íslenska heiti erlendra veitingakeðja hér á landi, í anda frönskumælandi Quebec.
Í færslu á Twitter skrifaði Andri Snær eftirfarandi færslu:
„Íslendingar eru sofandi hvað varðar ensku á skiltum og verslunum í bænum og leyfa tungumálinu að þokast í annað sæti. PFK er í frönskumælandi Quebec. Getur einhver hannað SKK? Steiktur kentucky kjúklingur?“ Merkti hann Braga Valdimar Skúlason á færsluna sem svaraði um hæl:
„Er það ekki SHK? Steikt hænsn frá Kenjatúni?“
Örn nokkur gerði grín að öllu saman: „Ísland úr AHBL og herinn burt!“
Að lokum kom fín uppástunga hjá Jóni nokkrum Grétari: „Djúpsteiktur kentucky kjúklingur! DKK“