Anna Kristjánsdóttir rekur ekki flutningsþjónustu til og frá flugvellinum á Tenerife. Þetta tekur hún sérstaklega fram í nýrri dagbókarfærslu á Facebook.
Í stórskemmtilegri dagbókarfærslu segir Anna Kristjánsdóttir frá hinu og þessu eins og oft áður en í lok færslunnar finnur hún sig knúna til að taka fram að hún sé ekki að reka flutningsþjónustu á Tenerife.
Anna skrifar: „Ég var spurð að því hvort ég sækti fólk á flugvöllinn og ég kvað já við, ég ætlaði einmitt að sækja Pétur og Ástu á flugvöllinn. Næsta spurning var síðan hvað ég tæki fyrir að sækja fólk? Þá áttaði ég mig á því að umrædd kona var að spyrja um flutningsþjónustu til og frá flugvellinum.“
Segist Anna ekki reka slíka þjónustu enda löngu hætt að vinna:
Ég vil samt ítreka að ég rek ekki ferðaþjónustu fyrir Íslendinga sem koma til Tenerife. Það eru til bæði strætisvagnar og leigubílar sem sjá um slíkt. Ég er löngu hætt að vinna og geri slíkt einungis fyrir vini mína og ættingja og án endurgjalds. Púnktur.“
Hér má lesa alla færsluna: