- Auglýsing -
CrossFit-parið Annie Mist Þórisdóttir og Frederik Aegidius eru búin að eignast dóttur. Annie Mist segir frá gleðitíðindunum á Instagram með fyrirsögninni „Varan – ferðalagið – byrjunin.“
Segir Annie Mist að nú séu þau ekki aðeins ábyrg fyrir sjálfu sér og sér sem pari, heldur fyrir fjölskyldu. „Velkomin í heiminn dóttir, þú ert allt sem við gátum óskað okkur.“
Séð og Heyrt óskar parinu hjartanlega til hamingju.