- Auglýsing -
Langþráður draumur hins vinsæla rappara Aron Can rættist loks á dögunum.
Aron Can, sem þekktastur er fyrir lög eins og Aldrei heim, Silfurskotta, Aldrei Toppað, FLÝG UPP og SVEIF, er einnig nokkuð þekktur fyrir að vera nokkuð heitfengur. Eða honum finnst að minnsta kosti ekkert leiðinlegt að vera ber að ofan.
Í nýrri færslu á Instagram birti hann einmitt mynd af sér berum að ofan en aðstæðurnar eru óvenjulegar svo vægt sér til orða tekið. Aron sést á myndinni borða mat á fimm stjörnu veitingastað, kviknakinn að ofan. Við færsluna skrifar hann: „Fékk loksins að vera ber að ofan á fimm stjörnu.“
Hér má líta snilldina augum: