- Auglýsing -
Stórleikarinn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola, og sálfræðingurinn Hildur Skúladóttir, eignuðust son þann 25. október.
Það er Hildur sem greinir frá fæðingu drengsins á Instagram. Fyrir eiga þau soninn Birni Blæ.
„Elsku drengurinn okkar kom loksins í heiminn þann 25.10.21 eftir 41. vikna meðgöngu.
Hann var rúmir 15 merkur og gekk fæðingin eins og í sögu. Birnir Blær er svo stoltur í nýja hlutverkinu sem stóri bróðir,“ skrifar Hildur.
Mannlíf óskar þeim Hildi og Aroni innilega til hamingju með drenginn sinn.