Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segist vilja styðja betur við handverksbrugghús á Íslandi.
Áslaug mætti á Bjórhátið Ölverks síðastliðna helgi og sagði hún frá hátíðinni á Facebook síðu sinni. Þá segir hún að kynningar hafi verið bæði glæsilegar og skemmtilegar.
Ljóst er að Áslaug skemmti sér vel á hátíðinni en er hún tiltölulega ný komin heim frá París. Áslaug hefur deilt myndum frá ferðinni á samfélagsmiðlum þar sem hún naut sín vel og skoðaði margt af því sem borgin hefur upp á að bjóða.
Í Facebook pósti Áslaugar segir:
„Ég kíkti á Bjórhátíð Ölverks í Hveragerði um liðna helgi. Hátíðina skipuleggja Laufey Sif og Elvar eigendur Ölverks en þar komu saman 28 drykkjarframleiðendur til að kynna sína íslensku vöru með glæsilegum og skemmtilegum hætti í gróðurhúsi og íslenskri tónlist. Handverkbrugghúsum hefur fjölgað verulega undanfarin ár. Við ættum að styðja betur við þau og hætta gera þeim erfitt fyrir að stunda nýsköpun og verslun í sinni heimabyggð“.