Fyrirsætan og hálfsystir Kardashian systranna, Kendall Jenner(26) svarar þeim sem gagrýndu fataval hennar í brúðkaupi í lok síðasta árs.
Margir hafa sagt kjól stjörnunnar óviðeigandi og jafnvel skandal í slíkan viðburð en var það besta vinkona stjörnunnar, Lauren Perez sem gifti sig í Miami í nóvember.
Lauren tekur upp hanskann fyrir vinkonu sína í kommentakerfi á Instagram síðu hennar þar sem hún segir:
„Segðu þeim! Hún var glæsileg og ég elskaði þetta!“.
Kendall bætir við innlegg brúðarinnar og segist að sjálfsögðu hafa spurt um leyfi með fyrirvara til þess að mæta í kjólnum.
„Við elskum strandarbrúðkaup,“ skrifar hún að lokum.
Mônot kjóll fyrirsætunnar vakti svo sannarlega athygli en er hann opinn á mörgum stöðum og svartur að lit. Kjóllinn fór Kendall afskaplega vel en dæmi hver fyrir sig hvort hann sé hinn fullkomni „brúðkaupskjóll“.