Halldór Högurður Einarsson bendir á ansi spaugilegan staðreynd varðandi Icesave og Gordon Brown, í færslu á Facebook í dag.
Markaðsstjórinn Halldór Högurður Einarsson er með fyndnari mönnum Íslands en færslur hans á Facebook vekja jafnan mikla kátínu lesenda. Í þeirri nýjustu bendir hann á skemmtilega tilviljun, ef tilviljun skyldi kalla sem snertir gamla góða Icesave málið sem enginn saknar.
Bendir hann á að eiginkona fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown, sem setti hryðjuverkalög á Ísland eftir hrunið 2008, hafi árið 2015 breytt nafni PiggyBanksKids góðgerðasamstökunum hennar í Theirworld. Hið nýja lógó notast við svipað útlit og Icesave lógóið sem er greipt í sál flestra Íslendinga yfir þrítugu.
Færsluna má lesa hér:
„Sarah Jane Brown stofnaði góðgerðarsamtökin PiggyBankKids árið 2002, en 4 árum seinna, 2006 stofnuðu vanrþoska menn Icesave sem þeir umgengust einmitt sem eigin sparibauk.
Lífið er fyndið!“