Afsögn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í gær ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum í gær. Ef marka má nýjustu færslu Bjarna á samfélagsmiðlinum Instagram virðist Bjarni taka nýjum degi með æðruleysi en kappinn ku hafa brugðið sér í göngugallann í morgunsárið. Hann birti myndræna ljósmynd frá undirgöngum Reykjanesbrautar en við enda ganganna sést falleg morgunbirtan.
Undir myndina skrifar Bjarni: „Gengið undir Reykjanesbraut í morgunsárið.“
Túlkun myndarinnar er í fylgjanda sett – Útgönguleið eða ljós við enda ganganna?
Lauflétt getraun Mannlífs:
Vakin er athygli á fjallinu á ljósmyndinni en hvað heitir fjallið sem Bjarni sá? Svör óskast í athugasemdum.
Hér má sjá færslu Bjarna í heild:
View this post on Instagram