Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir hlaut í vikunni verðlaun á AIM verðlaunahátíðinni en breskir fjölmiðlar hafa fjallað um hátíðina. Meðal þeirra sem hlutu verðlaun voru Wet Leg og RAYE og fengu áhorfendur að njóta tónlistar atriði frá P Money & Whiney, Laughta og Cassia. Kvöldinu var lýst sem mögnuðu en Björk fékk hlustendaverðlaun í flokknum „Besti flytjandinn“.
„Það er mikill heiður að vera valin af aðdáendum sem besti flytjandinn. Ég er rosalega þakklát. Ég hef sungið á tónleikum síðan ég var barn og einhver mest gefandi augnablik lífs míns hafa verið í samverustundum með áhorfendum þegar nærvera mín og þeirra rennur saman… One Little Indian og sjálfstæðir útgefendur, við getum þetta!,“ sagði Björk á hátíðinni.