- Auglýsing -
Söngdívan Bríet komst í hann krappann í nótt þegar hún ætlaði að sækja sér Collab-dósir af svölunum.
Bríet Ísis Elfar, söngkona með meiru, gerði afar spaugilega story-færslu í gærkvöldi en þar má sjá hana skoða afleiðingar þess að hún skildi Collab-orkudrykki úti á svölum hjá sér í frostinu sem svo byrjuðu að springa. Söngkonan tók því allar dósirnar inn sem byrjuðu ein af annarri að springa í loft upp og var Bríet varla að trúa eigin augum. „Heyrðu, ég ætlaði að fara að sofa! Ertu ekki að grínast?“ sagði Bríet þegar hún áttaði sig á því að það væri jafnvel Collab-slettur á loftinu.
Hér má sjá hið bráðfyndna myndband: