Söngkonan Britney Spears heldur áfram að vekja athygli á sér fyrir meinta neikvæða hegðun á internetinu en í myndbandi sem Crossroads leikkonan birti í gær á samfélagsmiðlinum Instagram kallar hún Jamie Lynn Spears, sem er yngri systir hennar, litla tík. Ekki liggur fyrir af hverju hún notaði þessi orð um systur sína en margt fólk í kringum Britney Spears hefur áhyggjur af andlegri heilsu hennar. Þá hafa fjármál söngkonunnar verið mikið í fjölmiðlum undanfarið en nástaddir segja að Spears hafi verið á eyðslufyllerí undanfarin ár og sé að nálgast gjaldþrot en hún er sögð eyða mörgum milljónum dala með stuttu millibili í lúxusferðir um heiminn. Þá er samband hennar við börn hennar sagt vera á hálum ís en synir hennar búa með föður þeirra og þeir hafa að sögn fjölmiðla beðið móður sína ítrekað um að hætta að fækka fötum á samfélagsmiðlum.