Hin geysivinsæla söngkona, Britney Spears hefur verið dugleg að sýna danshæfileika sína og sínar fínu línur síðan hún slapp undan ægivaldi föður síns fyrir stuttu. Því hafa fylgjendur hennar á Instagram tekið eftir. Í nýjustu færslum hennar sýnir hún þó talsvert meira en hún hefur áður gert.
Þar má sjá Britney sitja fyrir kviknakta á ströndinni og má segja að internetið hafi kannski ekki alveg brotnað en það fór þó á hliðina. Alls hafa 2,1 milljón manns líkað við fyrstu myndirnar en aðeins færri við næstu tvær færslur sem einnig sýna hana njóta strandarinnar á Evuklæðunum.
Ljósmyndirnar voru teknar á ferðalagi sem hún var á með unnusta sínum, Sam Asghari á dögunum en þar má sjá Britney rúlla sér í sandinum í glampandi sól á fallegri strönd.
Britney bauð unnustanum á ströndina í tilefni af 28 ára afmælisdegi hans sem er á morgun.
Hér má sjá tvær af myndum hennar:
View this post on Instagram