- Auglýsing -
Bruce Willis birtist í Instagram-færslu dóttur sinnar á krúttlegum ljósmyndum af þeim feðginum.
Bruce Willis sést ekki mikið þessa dagana en í mars í fyrra tilkynnti hinn 67 ára leikari að hann væri hættur leik eftir að hafa verið greindur með málstol. ET sagði frá nýju færslu Tallulah Willis, dóttur leikarans og leikkonunnar Demi Moore en í færslunni birti hún átta ljósmyndir, þar af tvær með föður sínum. Á báðum ljósmyndum heldur Bruce utan um dóttur sína og grettir sig. Undir færslunni skrifar Tallulah: „leiklistarklúbbur ~~ lífsleikni ~~ krossa fingur að ég borði grænmeti þessa vikuna LMAO“
View this post on Instagram