- Auglýsing -
Bubbi Morthens verður löggilt gamalmenni á morgun, 6. júní, en það er alls ekki að sjá á kappanum enda í svakalegu formi.
Í röð myndbanda sem Bubbi birti í dag á Facebook sést hann gera mismundi æfingar á líkamsræktarstöð og endurtekur sömu frasana aftur og aftur. „Má þetta?“ spyr þjálfari hans og Bubbi svarar: „Haltu kjafti nei! Ég ætla ekki að fá frítt í strætó! Ég ætla ekki að fá frítt í sund! Og ég ætla ekki að kúka í bleyju! En ég ætla að fá mér kókosbollu, Sómasamloku, litla kók og rífa kjaft!“
Hægt er að sjá þessi stórskemmtilegu myndbönd hér að neðan: