Cher lítur ekki á karlmenn á hennar aldri sem raunhæfa maka í rómantískum skilningi – vegna þess að hún sér þá yfir höfuð aldrei.
Söngdívan, sem er 77 ára gömul, var nýverið í viðtali hjá söngkonunni í þættinum The Jennifer Hudson Show. Þar útskýrði Moonstruck stjarnan hvers vegna hún hefur tilhneigingu til að leita að rómantískum maka sem eru yngri en hún. „Ástæðan fyrir því að ég fór að hitta unga menn er sú að karlar á mínum aldri eða eldri – jæja, nú eru þeir allir dánir,“ sagði hún. „Áður fyrr voru [karlar á mínum aldri] bara aldrei, þeir voru alltaf dauðhræddir við að nálgast mig og yngri menn voru þeir einu sem -“
„Þeir eru djarfir,“ greip Jennifer fram í.
„Já, aldir upp af konum eins og mér,“ svaraði Cher.
Hin 77 ára gamla söngkona hafði áður skotið niður gagnrýnendur vegna sambands síns við hinn 38 ára gamla Def Jam framkvæmdastjóra, Alexander „AE“ Edwards. „Hafið þið ekkert annað við tíma ykkar að gera?“ skrifaði Cher á Twitter árið 2022 eftir að notendur hneiksluðust á ástarlífi hennar. „Leyfið mér að útskýra … MÉR ER DRULLUSAMA HVAÐ ÖLLUM FINNST.
Hér má sjá þáttinn: