Hjónin eitursvölu Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir eignuðust barn númer tvö á föstudaginn.
Allir Íslendingar þekkja til þessara tónelsku hjóna sem stóðu sig frábærlega í Eurovision í vor.
Og hjónin Daði og Árný voru ekki lengi að nefna nýfædda barnið, og það nafn er sko ekki af verri endanum; Kría Sif Daðadóttir.
Þau Daði Freyr og Árný eiga fyrir tveggja ára dóttur sem heitir Áróra Björg.
Í dag býr þessi fallega og skemmtilega fjölskylda í Þýskalandi – í borginni Berlín; þar er nóg að gera í tónlistinni og barnauppeldinu.
Vonandi sjáum við og heyrum miklu meira frá þeim í náinni framtíð, og að sjálfsögðu óskar Mannlíf fjölskyldunni til hamingju með stækkunina og velgengnina.