Dwayne „The Rock“ Johnson fékk heldur betur yfirhalningu frá dætrum sínum nýlega. Verst að liturinn náðist illa úr andliti leikarans.
Dwayne birti drepfyndið myndskeið af dætrum sínum þar sem þær dunduðu sér við að mála pabba sinn bleikann með varalit. Við færsluna skrifaði hann eftirfarandi texta:
„Pabbi, megum við gera þig fínann?
Nei elskan, pabbi þarf að fara á zoom-fund eftir 10 mín.
GERÐU ÞAÐ, við verðum fljótar!
Ok, en verið fljótar en setjið bara naglalakk og gerið mig myndarlegan.
*zoom-fundinum slaufað.
*hvirfilbyljirnir mínir tveir benda og hlæja látlaust án miskunnar.
* Ég eyddi klukkutíma í að REYNA að skrúbba varalit af höfði mínu og andliti – óafvitandi að þetta drasl festist í húðinni 💄🤣
Hey, það kemur að því seinna meir að þær hafa engan áhuga á þessu lengur, þannig að skráðu mig inn – pabbi er til: 🙋🏽♂️😂“
View this post on Instagram