Fyrrum fótboltagoðið David Beckham sendi eiginkonu sína, fatahönnuðinn og fyrrum Kryddpíuna Victoriu Beckham, með heimapakkaðan hádegismat í vinnuna. Á nestisboxið hafði hann skrifað henni miða með skilaboðunum:
„Njóttu hádegismatarins ****haus…
Komdu glaðari heim 🙂 Fullt af ást – þú veist hver..“
Victoria deildi mynd af hádegismatnum og miðanum á Instagram með orðunum: „Hann hugsar vel um mig jafnvel þegar ég er fúl. Takk fyrir hádegismatinn.“
Samkvæmt blaðinu The Sun byrjuðu hjónin nýtt ár á því að fara í siglingu á snekkju sem þau festu nýverið kaup á. Snekkjan fékk nafnið Seven, eftir treyjunúmeri Davids á dögum hans hjá Manchester United.