Dorrit Moussaieff naut veðurblíðunnar með Samson og hópi karlmanna í Hvammsvík.
Veðurblíðan hefur leikið við Sunnlendinga undanfarna daga en Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands, lét sig ekki vanta í gleðina. Birti skartgripadrottningin brosmilda myndskeið á Instagram þar sem hún myndar klónaða hvuttann sinn, Samson og hóp af fáklæddum karlmönnum í heitu lauginni í Hvammsvík, Hvalsfirði. Karlmennirnir virðast hinir ánægðastir með félagsskapinn en þeir spjalla við hana og klappa Samson. „Hvar er Óli?“ spurði einn þeirra í lok myndskeiðsins en ekki heyrist svarið.
Við færsluna merkti Dorrit þó nokkur myllumerki, meðal annars #beachlife, #vikings, #hotsprings,#hotmen og #icelandlove.
View this post on Instagram