„Ljósið Rokkar“ er einstök tónlistarveisla sem verður haldin á Gauknum sunnudaginn 9. febrúar næstkomandi til styrktar Ljóssins endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Þar koma fram Eyþór Ingi, Teitur Magnússon, Mørose, Moskvít og The Wolfpack.
Hátíðin verður haldin til minningar um April Stjörnu en í texta sem fylgdi fréttatilkynningu um tónlistarveisluna segir:
Okkar elskulega April Stjarna greindist með 4.stigs krabbamein (Alveolar soft part sarcoma og pulmonary metastasis (lungnameinvörp) þegar hún var nýbökuð móðir, aðeins tvítug að aldri.
April Stjarna fór í gegnum nokkrar lyfjameðferðir, geislameðferð og heilaskurðsaðgerð og eftir hetjulega baráttu, um þriggja ára skeið, hafði krabbameinið því miður betur í baráttunni. Hún tókst á við alla erfiðleikana með glaðværð og hugprýði og sinnti dóttur sinni og fjölskyldu eins mikið og hún mögulega gat fram á síðustu stundu.
Á hátíðinni verður fjölbreytt dagskrá til stuðnings Ljóssins. Í boði verða kökusala, varningur seldur af sjálfboðaliðum Ljóssins, spennandi happdrætti og tækifæri til að leggja sitt af mörkum með frjálsum framlögum.
Markmið tónleikanna er að vekja athygli á mikilvægu og ómetanlegu starfi Ljóssins og safna fjármagni til að tryggja áframhaldandi stuðning fyrir þá sem þurfa á því að halda.
Aðgangseyrir er 2.500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn undir 16 ára.
Húsið opnar kl 17 og fyrsta band byrjar kl 18