Kvikmyndin Ljósbrot eftir Rúnar Rúnarssonar verður frumsýnd á morgun á Cannes kvikmyndahátíðinni og hefur í tilefni þess verið gefin út ný stikla.
Ljósbrot gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu. Upphefst þá rússibanaferð tilfinninga, þar sem mörkin milli hláturs og gráts, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. Nokkuð ljóst er að hádramatíska mynd er að ræða ef stiklan gefur rétta mynd en upphafsorð stiklunar koma frá Unu og segir hún: „Ég nenni ekki þessum feluleik lengur“
Meðal aðalhlutverk fer Elín Hall. Aðrir leikarar eru Mikael Kaaber, Katla Njálsdóttir, Gunnar Hrafn Kristjánsson, Ágúst Wigum og Baldur Einarsson.