Fimmtudagur 26. september, 2024
6.9 C
Reykjavik

Elísabet Jökuls blæs til veislu í dag – Fagnar útgáfu nýrrar bókar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Elísabet Jökulsdóttir heldur heldur útgáfuteiti í Eymundsson í Austurstræti í dag, til að fagna nýjustu bók sinni, Límonaði frá Díafani.

Þjóðargersemin Elísabet Kristín Jökulsdóttir gaf út á dögunum bókina Límonaði frá Díafani en hún hefur verið að fá glimmrandi dóma gagnrýnenda og er sjálfsagt enginn eftirbátur bókanna hennar Saknaðarilmur og Aprílsólarkuldi sem slógu rækilega í gegn fyrir fáeinum árum.

Í viðburðalýsingu útgáfuteitisins á Facebook segir um nýju bók Elísabetar: „ Límonaði frá Díafani kallast sterklega á við þessar bækur um leið og farið er með lesendur í heillandi könnunarferð um bernskuna undir grískri sól.“

Veislan hefst klukkan 16:30 í Eymundsson í Austurstræti í dag en Borgar Magnason leikur ljúfa tóna og Didda skáldkona stígur á stokk eins og það er orðað í viðburðalýsingunni. Þá verður bókin á sérstöku tilboði og límonaði verður auðvitað í boði.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -