Ríkasti maður heims, Elon Musk tjáði sig loksins um réttarhöld Amber Heard og fyrrverandi eiginmanns hennar, Johnny Depp en Musk átti í stuttu ástarsambandi við Amber eftir að leikarahjónin skyldu.
Fram kemur í frétt eonline.com, að stjórnarformaður Tesla og SpaceX, Musk hafi upprunalega átt að bera vitni í réttarhöldunum en að endingu var hætt við þá fyrirætlan. Kviðdómurinn í málinu eru þessa dagana að ræða saman um niðurstöðu í málinu en þann 31. mars verður dómurinn kveðinn upp.
Elon sagði í Twitterfærslu að hann vonaði að þau gætu bæði haldið áfram eftir réttarhöldin.
„Ég vona að þau geti bæði haldið áfram. Þegar þau eru upp á sitt besta eru þau bæði ótrúleg.“
Sjá einnig: Réttarhöld í beinni og óbragð í munni