Söngkonan og Eurovision-stjarnan Greta Salóme Stefánsdóttir hefur tilkynnt að hún sé ólétt af sínu öðru barni. Fyrir á hún soninn Bjart Elí með Elvari Karlssyni en sonur þeirra fæddist árið 2022.
Greta tilkynnti óléttuna á samfélagsmiðlinum Instagram og birt hugljúft myndband með. „Við getum ekki beðið eftir haustinu og litla krílinu sem ætlar að bætast í fjölskylduna. Það sem við erum þakklát og spennt! Hvort haldið þið að þetta sé lítill bróðir eða systir?“ skrifaði söngkonan geðþekka.
Flestir Íslendingar ættu að þekkja hana vel en hún hefur tvisvar sinnum tekið þátt í Eurovision fyrir hönd Íslands. Fyrst með Jóni Snæbjörnssyni árið 2012 og svo árið 2016.
View this post on Instagram