- Auglýsing -
Eva Laufey Kjaran og Haraldur Haraldsson eiga von á sínu þriðja barni en gleðifréttirnar tilkynnti hún á Instagram-síðu sinni í dag.
Fyrir eiga þau dæturnar Ingibjörgu og Kristínu sem virðast yfir sig ánægðar með tíðindin en Eva birti mynd af systrunum með sónar-mynd. „Hamingjan er hér. Í maí bætist í hópinn okkar og við getum ekki beðið,“ skrifar Eva við myndina. Mannlíf óskar fjölskyldunni innilega til hamingju með bumbubúann.