Raunveruleikastjarnan Christine Quinn sýndi frá myndatöku á Instagram reikningi sínum í gærkvöldi en var þemað að þessu sinni engin önnur en dúkkan heimsfræga, Barbie.
Christine hafa margir fylgst með í raunveruleikaþáttunum Selling Sunset en starfar hún sem fasteignasali í Los Angeles. Sýna þættirnir frá glamúr lífi fasteignasala í borginni og hallirnar sem hún selur kosta margar hverjar tugi milljarða.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/03/Screenshot_20220315-113919_Instagram-1-674x1024.jpg)
Myndatakan hefur verið tiltölulega auðveld fyrir stjörnuna og ljóst var að hún skemmti sér vel í stúdíóinu. Christine hefur oft verið líkt við Barbie dúkku í erlendum slúðurmiðlum og af myndunum að dæma er óneitanlega mikill svipur með þeim stöllum.
Christine prófaði ótal mörg dress þennan daginn
Sannkallað Barbie dúkku hár
Eflaust fáir sem spila tennis í svona dressi
Að lokum, Barbie á ströndinni