Nýr og öflugur fréttamiðill, Heimildin, var stofnaður á dögunum en nafnið hefur farið misvel ofan í landann. Jón Gnarr er einn þeirra sem finnst nafnið „skrítið“.
Leikarinn, grínistinn og fyrrum borgarstjórinn Jón Gnarr skrifaði færslu á Twitter þar sem hann segist hafa mikla trúa á nýja fréttamiðlinum sem varð til með samruna Stundarinnar og Kjarnans. Finnst honum þó nafnið „smá skrítið“ og minna sig á Viðreisn. Segist hann hafa viljað nafnið sem einhver snillingurinn kom með um daginn, Kjarnorkurstundin. Færsluna má lesa hér:
„ég hef mikla trú á þessum nýja miðli. mér finnst samt heimildin smá skrítið nafn, smá sona Viðreisn. fyrir mér er orðið mjög tengt bankareikningi og yfirdrætti. ég var sko team Kjarnorkustundin. Stundarkjarni var nr 2 #Kjarnorkustundin“