- Auglýsing -
Friðrik Ómar óskaði fylgjendum sínum gleðilegra hinsegin daga í gær frá Fiskidögunum á Dalvík. Með hátíðaóskunum lét hann fylgja af sér mynd og í örmum hans afar föngulegur karlmaður. Yfir 1500 manns hafa líkað við færsluna og fjölmargir skilið eftir athugasemdir meðal annars um hversu flottir þeir séu. Þá ritar ein undir myndina:
„Mikið eruð þið fallegt par. Til lukku með hvorn annan og framtíðina“
Þegar betur er að gáð má sjá að í örmum Friðriks er enginn annar en fótboltakapppinn Rúrik Gíslason.