Fullt var út úr dyrum í framboðs partýi Hannes Steindórssonar á föstudaginn síðasta og mikið líf og fjör. Partýið var haldið á Spot í Kópavogi þar sem Herra Hnetusmjör skemmti gestum. Hannes býður sig fram í fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þann 12. mars næstkomandi en segir hann á Facebook síðu sinni að það hafi glatt hann mikið hve fjölmennt var í teitinu.
Hannes kannast margir við en hefur hann rekið fasteignasöluna Lind frá árinu 2013 en er hún ein stærsta fasteignasala landsins. Hannes flutti frá Dalvík sem barn og hefur búið í Kópavogi síðan. Markmið hans er að góðan bæ enn betri en telur hann Kópavogsbæ vera á góðum stað. Hannes hefur fengið frábærar móttökur vegna prófkjörsins og eins og má sjá á myndum hér að neðan skemmti fólk sér vel á föstudaginn.