Davíð var giftur söngkonunni Jóhönnu Guðrúnu en þau eru nú skilin, en eiga saman tvö börn. Morgunblaðið sagði frá þessu í morgun undir fyrirsögninni, Davíð kominn á Tinder. Blaðið óskaði Davíð velfarnaðar.
Greint var frá því í lok sumars að Davíð og Jóhanna væru að enda hjónaband sitt.
Svo var það í byrjun þessa mánaðar að greint var frá því að Jóhanna væri komin í samband með Ólafi Friðrik Ólafssyni, og stuttu eftir það komu þær fréttir að parið glænýja ætti von á barni.
Davíð er hörku tónlistarmaður sem hefur gert það gott í bransanum undanfarin ár og spilað með fjölda íslenskra tónlistarmanna, þar á meðal með fyrrum konu sinni, en líklega er það samstarf þó nú fyrir bí, þó maður skyldi aldrei segja aldrei.