Halldór Högurður gerir grín að „vælandi“ Íslendingum, í tengslum við stóra öskutunnumálið.
Fyrsta haustlægðin kom yfir landið í gær og í nótt, mörgum til mikillar ánægju eða hitt þó heldur. Halldór Högurður, ráðgjafi í Búdapest er þekktur fyrir afar kaldhæðinn húmor sinn og stórfurðulegar en skemmtilegar gervigreindarmyndir sem hann birtir á Facebook. Í gær birti Halldór slíka mynd af öskutunnum og skrifaði færslu varðandi Íslendinga og ruslatunnurnar þeirra en margir hafa að undanförnu kvartað sáran yfir því að tunnurnar þeirra séu ekki tæmdar oftar. Færsluna kaldhæðnu má lesa hér að neðan:
„Það er svo magnað að fylgjast með fólki og gjörðum þess. Fjöldinn allur hefur undanfarið farið hamförum á neti vælandi undan því að öskutunnur þeirra og ótal aðrar tegundir af tunnum stæðu ótæmdar vikum og mánuðum saman og Reykjavík væri farin að lykta eins og París …. Nú stefnir í tryllt veður og sömu þverúlantar og andansvælupeð eru öll úti að fergja ruslafötur með steinhellum eða leiðinlegri hluta barnaskara síns.