Hin breska Mila De’brito hefur vakið mikla athygli eftir að hún sagði frá aðferð sinni til að þéna auka pening. Eftir fæðingu seinna barnsins síns ákvað hún að byrja að selja brjóstamjólkina sína og sló í gegn hjá lyftingamönnum en hún hefur selt brjóstamjólk fyrir yfir eina og hálfa milljón íslenskra króna eða tíu þúsund breksra punda. Brjóstamjólk þykir vera ofurfæða innan ræktarbransans og eru einhverjir sem stundar þann lífstíl tilbúinir að borga háar fjárhæðir fyrir mjólkina. Bolli af brjóstamjólk er sagður innihalda um 170 kaloríur, 10 grömm af fitu, 26 grömm af kolvetnum og tvö grömm af próteini, ásamt ýmsum vítamínum og steinefnum
Sumar rannsóknir hafa gefið til kynna jákvæð áhrif brjóstamjólkur á Crohn‘s veiki, gigt og jafnvel einhverfu, ekkert bendir þó til þess að hún hjálpi við uppbyggingu vöðva.