- Auglýsing -
Áhrifavaldurinn Guðrún Helga Sørtveit tilkynnti í gær að hún ætti von á dreng með kærasta sínum Steinari Erni Gunnarssyni. „Litli bróðir. Steinarsson Sørtveit,“ skrifar hún undir sónarmynd en fyrir á parið litla stúlku, Áslaugu Rún, sem fædd er árið 2020 á sjáfan Valentínusardaginn.
Guðrún, sem er mikil smekkskona, er með rúmlega fimmtán þúsund fylgjendur á Instagram. Auk þess er hún vinsæll bloggari á Trendnet og förðunarfræðingur. Við sendum fjölskyldunni hamingjuóskir.