Guðrún Dís Emilsdóttir kynnti á dögunum nýjustu ástina í lífi hennar og fjölskyldunnar.
Fjölmiðlakonan vinsæla, Guðrún Dís Emilsdóttir eða Gunna Dís eins og hún er yfirleitt kölluð, birti ljósmyndir og myndband á Instagram af nýjasta meðlimi fjölskyldunnar, Havanese hundinum KóKó.
Við færsluna birti hún eftirfarandi texta:
„Þetta er hann KóKó. Hann er búinn að vera partur af fjölskyldunni í þrjár vikur og við erum ofsalega ánægð með hann. Hann er alger bræðingur og ég er með hann á heilanum, á dauða mínum átti ég von en ekki þessu ❤️“
Gunna Dís er gift Kristjáni Þór Magnússyni, sem hrökklaðist frá starfi sínu sem bæjarstjóri á Húsavík en hefur nú haslað sér völl á nýjum vettvangi, sem aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri. Gunna Dís kom með frábæra endurkomu á Rás 2 í fyrra og í gær var nýjasta afurð hennar í sjónvarpi birt á RÚV, Svona erum við, þar sem hún fjallar um íslensku þjóðina á léttum og skemmtilegum nótum, eins og henni er einni lagið.
View this post on Instagram