Útvarpskonan Guðrún Dís Emilsdóttir birti skemmtilega ljósmynd af eiginmanni sínum í tilefni af afmæli hans og skrifaði fallega kveðju við myndina.
Hin sívinsæla útvarps og sjónvarpskona Guðrún Dís eða Gunna Dís eins og hún er yfirleitt kölluð, birti ljósmynd í gær af eiginmanni sínum, Kristjáni Þór Magnússsyni, fyrrum bæjarstjóra Húsavíkur þar sem hann er klæddur fyrir ströndina. Myndina birti hún á Instagram-reikningi sínum. Tilefnið var afmæli Kristjáns Þórs en Gunna Dís skrifaði fallegan texta við myndina. Er hann eftirfarandi:
„Ástin mín Kristján Þór Magnússon á afmæli í dag. Myndin er ekki tekin rétt í þessu, við erum stödd á skerinu í sama skítaveðri og þið hin… Hann er samt alltaf með sól í hjarta og því fannst mér þessi myndbirting einkar viðeigandi. Til hamingju með daginn elskan ❤️“