Miðvikudagur 8. janúar, 2025
-8.2 C
Reykjavik

Gunnlaugur segir heiminn vera að breytast: „Valdið er að færast í alþjóðlegar stofnanir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur segir stóran hluta af þjáningu fólks stafa af rembingi við að passa inn í normið í stað þess að leyfa sér að vera einstaklingur. Gunnlaugur, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, hefur tekið fólk í einkatíma í meira en 40 ár og varð hugfanginn af stjörnuspeki aðeins 15 ára gamall:

„1973 gerði ég fyrsta stjörnukortið og fann að þetta væri það sem ég myndi gera í lífinu. Það eru gríðarleg fræði á bakvið stjörnuspeki og þetta eru alvöru aldagömul vísindi sem hafa orðið útundan. Eftir að hafa hitt mikinn fjölda fólks í gegnum tíðina sé ég að stór hluti af vanda fólks er að reyna að fitta inn í eitthvað norm, en svo eru allir hinir að hugsa það sama. Við erum einstaklingar og verðum að virða það hver við erum og hætta að reyna að þvinga okkur inn í að vera eins og eitthvað kerfi ætlast til að við séum,“ segir Gunnlaugur, sem ræðir í þættinum um stöðuna í heiminum núna og hvernig kerfin og samfélögin séu óhjákvæmilega að breytast:

„Þessi hefðbundnu gömlu stjórnmálakerfi virka ekki lengur á 21. öldinni vegna þess að þau voru skrifuð fyrir meira en 200 árum af körlum í valdastöðu fyrir aðra karla í valdastöðu. Það sama gildir um skiptinguna milli hægri og vinstri flokka sem við höfum þekkt úr stjórnmálunum. Það má rekja hana til frönsku stjórnarbyltingarinnar þar sem íhaldsmenn, aðall og konungssinnar sátu hægra megin í þingsalnum í París og hinn lýðræðissinnaði almúgi sat vinstra megin. Allt saman karlar að skrifa leikreglur fyrir sjálfa sig,“ segir Gunnlaugur og heldur áfram:

„Núna þegar 21.öldin er gengin í garð í heimsþorpi tækni- og upplýsingabyltingar, vaknar fólk til meðvitundar um stöðu sína. Þá blasir við óréttlæti sem hefur verið við lýði gríðarlega lengi. Átökin í heiminum í dag snúast mikið um að hvorki nútíðin né fortíðin hafa verið eins og við viljum og því er bara ein leið í boði sem er framtíðin. Heimurinn er búinn að breytast mjög hratt á stuttum tíma. Landamæri eru að smátt og smátt að hverfa, þjóðarbrotum og trúarbrögðum ægir saman í borgum heimsins sem verða æ líkari hver annarri. Upplýsingastreymið er mikið og kemur úr öllum áttum. Bæði opinberlega og á bak við tjöldin, eru hin hefðbundnu þjóðfélög að leysast upp og þjóðríki breytast hægt og rólega í sambandsríki. Valdið er að færast í alþjóðlegar stofnanir, en mest til stórfyrirtækja. Hér á Íslandi er stór millistétt sem borgar brúsann, greiðir háa skatta af launum og lánum og stendur í gríðarlegum átökum í lífinu. Á endanum eru margir hreinlega að kafna. En hvað okkur sem einstaklinga varðar þá er það undir hverjum og einum komið að vinna á jákvæðan hátt í því að laga og umbreyta þjóðfélagskerfinu. Breytingar munu eiga sér stað hvað sem hver og einn segir, óskar sér eða vill. Eina óumbreytanlega lögmál lífsins er að allt er breytingum háð.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -