- Auglýsing -
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir og unnusti hennar Reynir Daði Hallgrímsson eiga von á barni saman. Sigrún er þekkt fyrir hönnunarmerki sitt Gyðja Collection og hefur lengi verið kölluð Gyðjan. Auk þess er hún eigandi líkamsmeðferðar- og snyrtistofunnar The House of Beauty.
Sagði hún frá gleðifréttunum á Instagram-síðu sinni og eru verðandi foreldrarnir yfir sig spent. „Við Reynir erum ótrúlega hamingjusöm og spennt að tilkynna heiminum að við eigum von á lítilli prinsessu í desember,“ skrifar hún við færsluna og birtir fallega sónarmynd.
Við óskum parinu til hamingju!