Hagaskóli vann í gær Skrekk en keppnin er árleg leiklistar- og hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur. Atriði Hagaskóla heitir Stingum af og fjallar um loftslagsvána. Í öðru sæti var Laugalækjarskóli með Kæra dagbók og Réttarholtsskóli með Einbeittur brotavilji. Þá hlaut Ölduselsskóli sérstök verðlaun fyrir skapi notkun íslensku.
Seljaskóli, Fellaskóli, Breiðholtsskóli og Árbæjarskóli komust einnig í úrslit þetta árið.
Þetta var í 10. skipti sem Hagaskóli sigraði keppnina en hún var fyrsta haldin árið 1990. Þá er skólinn sá eini sem hefur unnið oftar en 4 sinnum.
Eiður Arnarsson, viðskiptastjóri tónlistardeildar tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, Sara Lind Guðnadóttir, dansari í Íslenska dansflokknum, Vala Fannell, verkefnastjóri samfélagsmála í Þjóðleikhúsinu, Emelía Antonsdóttir Crivello, skóla- og verkefnastjóri Borgarleikhússins og Kamilla Inga Ellertsdóttir, fulltrúi ungmennaráðs Samfés, sátu í dómnefnd þetta árið.