Leikkonan vill að fólk hætti að hugsa svona mikið um Harry Potter.
Miriam Margolyes sem lék Professor Sprout í Harry Potter-myndunum skilur ekki áframhaldandi vinsældir myndanna. „Þetta var fyrir 25 árum og þetta er fyrir börn. Ég held að þetta sé fyrir börn,“ sagði leikkonan við 1News í Nýja-Sjálandi.
„Fólk festist í þessu,“ hélt leikkonan áfram og gagnrýndi að fólk sé halda brúðkaup í Harry Potter-stíl. Hún sagði þó að myndirnar væru yndislegar og hún væri mjög þakklát fyrir að hafa fengið að leika í myndunum.
„Að mínu mati voru Harry Potter-myndirnar ekki mikilvægar. Ég var þakklát að fá hlutverkið og naut þess og að kynnast öllu fólkinu en þetta er ekki Charles Dickens,“ sagði hún einnig í viðtali við Vogue í júní á seinasta ári.