Hildur Birna og Kristín María Gunnarsdætur frumsýna sýninguna sína Aldrei betri í Tjarnabíó í dag 17. janúar.
Að eigin sögn eru þær báðar orðnar vel miðaldra og munu gera því hlutskipti góð skil í þessu bráðskemmtilega uppistandi. Efnistök sýningarinnar verða meðal annars heimabær þeirra Vesturbærinn, stefnumótamenning fimmtugra og sigrar og ósigrar í lífsins ólgu sjó.
Hildur Birna og Kristín María hafa komið fram með uppistand við fjölda tilefna bæði saman og í sundur síðasta áratuginn. Þær voru í uppistandshópnum Bara góðar sem hélt fjölmargar sýningar í þjóðleikhúskjallaranum, á Akureyri og víða um land á árunum 2018 til 2020.
Sýningin hefst klukkan 17:30 í dag en hægt er að finna miða hér.