Frosti Logason fjölmiðlamaður og kona hans, Helga Gabríela Sigurðardóttir matreiðslumaður skelltu sér til Potrúgal í vikunni til ferðamannastaðarins Algarve.
Ljóst er að þau hjónin njóti sín vel í sólinni en þau hafa birt myndir af sér á samfélagsmiðlum síðustu daga, meðal annars á sundlaugabakkanum.
Ætla má að hitastigið sé í kringum 25 gráður í Portúgal núna.
Frosti og Helga giftu sig snemma á árinu og eignuðust annað barn sitt í sumar sem var drengur en fyrir áttu þau dreng saman. Fjölskyldan er saman í fríinu sem má segja að sé ágætis framlenging á sumarfríinu.
Frosti var annar stjórnenda morgunþáttarins Harmageddon en var síðasta þættinum útvarpað síðasliðinn föstudag. Frosti hefur sagt ætla að halda áfram störfum hjá Sýn og í sjónvarpi.
Mannlíf tók kvöldviðtal við Frosta í síðustu viku þar sem hann ræðir þáttinn vinsæla. Viðtalið má lesa í heild sinni HÉR.