Fimmtudagur 30. janúar, 2025
-0.2 C
Reykjavik

Hörður Torfa fagnar stórafmæli á árinu: „Margir eru undrandi á því einhverra hluta vegna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hörður Torfason bendir á þá skemmtilegu staðreynd að hann sé ekki eini tónlistarmaðurinn sem nær áttunda tugnum í aldri á árinu.

Þótt ótrúlegt sé, verður tónlistarmaðurinn Hörður Torfason áttræður á árinu. Í Facebook-færslu í morgun minnist hann á þá staðreynd og bendir á þá áhugaverðu staðreynd að fleiri íslenskir tónlistarmenn urðu eða verða áttræðir á árinu, þó sumir þeirra séu því miður látnir.

Hér má sjá færslu hins síunga trúbadors:

„Ég er talsvert spurður um aldur þessa daga og það er alveg rétt ég verð 80 ára þann 4 september. Margir eru undrandi á því einhverra hluta vegna. En ég sit ekki einn á þeim bekk þegar horft er til okkar stráka sem deilum þessum áfanga og eigum það sameiginlegt að hafa unnið við tónlist. Hér tel ég hópinn upp til gamans. Gunnar Þórðarson 4.jan´45. – Magnús Þór Jónsson 7.apríl´45. – Rúnar Júlíusson 13.apríl ´45-5 des.´08 – Vilhjálmur Vilhjálmsson 11.apríl´45 – 28 mars´78 – Magnús Eiríksson 25 ágúst´45 – Hörður Torfason 4 sept.´45.“

Hér má svo sjá Hörð syngja eitt sitt allra besta lag, við ljóð Tómasar Guðmundssonar.

- Auglýsing -

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -