Við Bláskóga 16 í botnlangagötu stendur glæsileg eign á frábærum stað í Reykjavík. Eignin stendur á gríðarlega stórri lóð, sem er 819 fermetrar og er afar gróin og skjólsæl. Arkitektúr hússins vekur athygli, bæði að innan og utan. Lind fasteignasala er með eignina á skrá hjá sér en sjón er sögu ríkar.
Svalirnar á húsinu eru stórar og garðurinn gróinn. Er þetta líklega drauma verkefni þeirra sem hafa græna fingur.
Veggirnir setja skemmtilegan svip á heimilið. Náttúruflísarnar eru tímalausar og takið eftir viðarklæðningunni í loftinu.
Þetta er alvöru skrifstofa
Veggurinn skilur stofu hæfilega mikið frá borðstofu og býr til notalegan krók.
Svona veggir eru óvanalegir en ótrúlega flottir. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á vef fasteignasölunnar.