Við Austurkór stendur einstaklega vel staðsett einbýlishús á einni hæð sem nú er komið á sölu. Samkvæmt lýsingu er húsið 215,8 fermetrar á stærð og afar vel skipulagt. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og fataherbergi. Útsýnið úr húsinu stórbrotið eins og sjá má á myndum en má segja að það sé amerískur stíll yfir húsinu að innan.
Hér má sjá glitta í arinn og forstofu
Eldhúsið er hvítt en ljóst yfirbragð er yfir meirihluta hússins
Borðstofan er afar björt með hurð sem opnast út á rúmgóðan sólpall.
Mikil lofthæð er í húsinu og hiti í gólfum
Notalegt rými sem er samt sem áður bjart
Í hjónasvítunni er fataherbergi
Tvö baðherbergi eru í húsinu en annað þeirra er inn af hjónaherbergi – Lúxus
Að lokum. Útsýnið. Það má segja að þetta sé eins og að vera í sveit, mikil náttúrufegurð. Fyrir áhugasama má nálgast frekari upplýsingar á vef fasteignasölunnar.