Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur nú birt fallega meðgöngumynd af sér á Instagram-reikningi sínum. Þetta er fyrsta myndin sem hún birtir frá þessari meðgöngu.
Myndina birti hún í gær og er hún líklega tekin í kringum útgáfutónleika Jóhönnu Guðrúnar í Háskólabíói síðastliðinn sunnudag. Á henni klæðist Jóhanna fallegum kjól og brosir breitt.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarið, á Jóhanna Guðrún von á barni með kærasta sínum, Ólafi Friðriki Ólafssyni. Jóhanna Guðrún og fyrrum eiginmaður hennar, Davíð Sigurgeirsson, skildu fyrr á þessu ári. Þau eiga tvö börn saman.
Ólafur Friðrik er þó ekki alveg glænýr kærasti – þau Jóhanna voru nefnilega par hér á árum áður, fyrir samband hennar og Davíðs. Jóhanna Guðrún og Ólafur voru til að mynda par þegar Jóhanna keppti í Eurovision í Moskvu fyrir Íslands hönd, árið 2009.
View this post on Instagram