- Auglýsing -
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona og Ólafur Friðrik Ólafsson, kærasti hennar, hafa eignast dóttur. Kom stúlkan í heiminn þann 23.apríl síðastliðinn en birti Jóhanna Guðrún mynd af dóttur þeirra á Facebook-síðu sinni í gær. Ljóst er að sú stutta hefur komið í heiminn með hraði og er fjölskyldan í skýjunum.
„Litla drottningin mætti með hraði 23 apríl – við erum í skýjunum með hana enda er hún fullkominn – ég er heppinn kona,þótt ég sé stundum smá þreytt,“ skrifar söngkonan við myndirnar. Óskum við fjölskyldunni innilega til hamingju með litlu stúlkuna.