- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn Jóhannes Patreksson, oftast kallaður JóiPé, er byrjaður í sambandi með leikkonunni Molly Carol Birnu Mitchell.
JóiPé skaust fram á sjónarsviðið árið 2017 og varð á einni nóttu einn þekkasti tónlistarmaður landsins en hann er þekktastur fyrir lögin Ég vil það og B.O.B.A. Hann gaf út plötuna Fram í rauðan dauðann í fyrra og vakti platan mikla athygli. Molly Carol Birna Mitchell er þekktust fyrir leik sinn í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á Chicago en söngleikurinn var frumsýndur í janúar á þessu ári.
Vísir greindi fyrst frá.